04.04.1973
Neðri deild: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3043 í B-deild Alþingistíðinda. (2446)
105. mál, dómari og rannsóknardeild í ávana- og fíkniefnamálum
Frsm. (Ellert B. Schram):
Herra forseti. Á þskj. 482 er nál. allshn. um þetta mál, en n. leggur til, að það verði samþ. óbreytt, eins og það kom frá Ed. Eftir að n. lauk störfum, var þeirri ábendingu komið á framfæri við hana, að rétt væri að breyta síðasta ákvæði frv. um gildistöku laganna þannig, að í stað þess, að lögin öðluðust þegar gildi, væri gefið eitthvert ráðrúm og miðað t. d. við 1. júlí. N. hefur ekki getað tekið afstöðu til þessarar brtt., en mun væntanlega gera það og mun þá leggja fram brtt. fyrir 3. umr.
N. vísaði þessu máli ekki til umsagnar neinna aðila, en kynnti sér umsagnir, sem höfðu legið fyrir í Ed., þ. e. a. s. umsagnir Læknafélags Íslands og frá lögreglustjóranum í Reykjavík.
Það hafa einkum komið fram tvær aths. við þetta frv., annars vegar frá lögreglustjóranum í Reykjavík þess efnis, að hann sé ekki hlynntur því, að stofnuð sé sérstök deild lögreglumanna hjá sérstöku dómaraembætti. Hann telur skiptinguna nú vera nægilega erfiða, enda þótt ekki sé stofnað til nýs slíks embættis, eins og þarna er gert ráð fyrir.
Hin aths., enda þótt hún hafi ekki komið formlega til n., er á þá leið, að það sé óeðlilegt og gegn réttarþróuninni, að stofnaðir séu sérstakir dómstólar. Með tilliti til þessa máls og atvika allra hefur n. þrátt fyrir kannske mismunandi skoðanir nm. á þessum tveimur aths., engu að síður lagt einróma til, að þetta frv. yrði samþ.
Ég vil persónulega fá að segja hér nokkur orð, vegna þess að á síðasta þingi lagði ég ásamt hv. þm. Oddi Ólafssyni fram þáltill., sem fjallaði um sölu og neyzlu fíkniefna, en þar gerðum við að till. okkar, að stofnuð yrði sérstök rannsóknardeild vegna fíkniefnaneyzlu. Af þeim ástæðum fagna ég því, að þetta frv. hefur nú verið lagt fram, en það gengur í aðalatriðum í sömu átt, þ. e. a. s. þarna er gert ráð fyrir því, að stofnuð sé sérstök deild. Að vísu er í frv. lögð mikil áherzla á dómstólinn sem slíkan og hann gerður að aðalatriði þessa máls. Mér persónulega finnst, að það sé ekki lagt nægilega mikið upp úr öðrum þáttum, sem snúa að þessu vandamáli, þáttum eins og t. d. þjálfun sérhæfðra starfsmanna, útbúnaði slíkrar deildar, hinni læknisfræðilegu og félagslegu hlið málsins og hinu fyrirbyggjandi starfi, svo sem fræðslu og endurhæfingu. Á allt þetta skortir nokkuð í þessu frv. og þarf að sjálfsögðu að takast á við. Hins vegar hef ég skilið það svo, að þessi deild og þessi dómstóll séu sett á stofn nú til þess að grípa strax á þessu vandamáli og leysa brýnustu þörfina, og hef ég fullan skilning á því, enda þótt málið sé ekki skoðað ofan í kjölinn og gerðar ítarlegar till. um alla þætti þess, og er ég því mjög ásáttur um málið eins og það liggur fyrir núna.
Ég vil aðeins upplýsa það, að ég hef aflað mér upplýsinga um þá starfsemi, sem nú fer fram á vegum lögreglunnar um þessi mál, — og reyndar hefur það komið fram að einhverju leyti í umr. áður um þetta frv. — starfsemi, sem er fólgin í því, að tveir menn eru starfandi eingöngu að rannsókn fíkniefnaneyzlu og sölu og dreifingu á slíkum efnum, og þessir tveir menn hafa unnið ágætt starf. Þeir hafa lagt þar grundvöll að miklu meira starfi, sem að sjálfsögðu þarf að vera, bæði hvað snertir mannafla og allan aðbúnað. Þeir hafa tjáð mér, að þeir hafi sent frá sér til sakadómaraembættisins 206 skýrslur vegna mála, sem upp komu á tímabilinu jan. – des. 1972. Það munu ekki liggja fyrir nein mál hjá þessum lögreglumönnum nú, sem ófrágengin eru, en mér er hins vegar sagt, að ekkert þessara mála, þ. e. a. s. engin þessara skýrslna, sem þeir hafa sent frá sér, hafi hlotið afgreiðslu hjá dómstólum, í þessu tilfelli Sakadómi Reykjavíkur, og er það að sjálfsögðu mjög miður og sýnir, hversu nauðsynlegt er, að þeim þætti málsins, sem snýr að dómstólunum, lokastiginu, sé kippt í lag, eins og reyndar er gert ráð fyrir í þessu frv. Auk þess sem þessir lögreglumenn hafa sent frá sér þessar rúmlega 200 skýrslur, hafa þeir byggt upp mjög góða spjaldskrá og hafa þar safnað saman upplýsingum um á sjötta hundrað einstaklinga, sem geyma ýmsan fróðleik um fólk, sem hefur á einn eða annan hátt verið tengt við neyzlu þessara fíkniefna.
Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um, hversu alvarlegt vandamál hér er á ferðinni. Við skulum vona, að það vaxi ekki meira í þessu þjóðfélagi. Margt bendir til þess, að hér hafi verið unnið mjög gott starf, þannig að að einhverju leyti hafi verið komið í veg fyrir mikinn vöxt þess. En við skulum ekki vera of bjartsýn, og við skulum ekkert til spara til þess að hefta útbreiðslu og neyzlu á fíkniefnum.
Ég endurtek það að lokum, að n. hefur einróma lagt til, að frv. verði samþ.