04.04.1973
Neðri deild: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3060 í B-deild Alþingistíðinda. (2467)

122. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1973

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Þm. Sjálfstfl. hafa mjög átalið meðferð þessa máls í þinginu og þingnefndarmönnum flokksins hefur verið synjað um upplýsingar, sem þeir telja nauðsynlegar og var eðlilegt að yrðu þeim í té látnar, til þess að við gætum haft heildarsýn yfir meðferð þessara mála og í fullum tengslum við það, sem fyrirhugað er og ráðgert er í sambandi við fjárlögin og fjárveitingar til opinberra framkvæmda. Þegar innt hefur verið eftir upplýsingum hér í umr. á þingi, hafa engin svör borizt. Með þessu móti hefur hæstv. ríkisstj. og stjórnarlið gert í raun og veru ókleift að taka nokkurn þátt í afgreiðslu slíks máls með þeim hætti. sem það nú ber að höndum. Ég greiði því ekki atkv.