07.04.1973
Neðri deild: 80. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3153 í B-deild Alþingistíðinda. (2607)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (GilsG):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 7. apríl 1973.

Þar sem ég af heilsufarsástæðum mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 183. gr. laga um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. e., Jónas Jónsson aðstoðarmaður ráðh., taki sæti á Alþ. í forföllum mínum.

Gísli Guðmundsson, 1. þm. Norðurl. e“.

Jónas Jónsson hefur áður tekið sæti á þessu þingi, og tekur hann nú sæti, sem 1. þm. Norðurl. e.