07.04.1973
Neðri deild: 81. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3177 í B-deild Alþingistíðinda. (2631)

169. mál, heilbrigðisþjónusta

Forseti (GilsG):

Áður en lengra er haldið, vil ég gera örstutta grein fyrir því hvernig ég hef hugsað mér framhald fundarhalda hér í dag og áframhaldandi meðferð þessa máls. Ég vil freista þess að ljúka 2. umr. í dag, en geri hins vegar ráð fyrir að fresta atkvgr. til mánud. Það er gert í trausti þess, að hv. heilbr: og trn. haldi eftir sem áður áfram að vinna að málinu, eins og 2. umr. verði lokið. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa atkvgr. um málið í kvöld, en vænti þess hins vegar eftir sem áður, að hægt verði að hafa 3. umr. um málið á mánudag.