10.04.1973
Sameinað þing: 68. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3282 í B-deild Alþingistíðinda. (2751)

304. mál, skipun opinberra nefnda í tíð núverandi ríkisstjórnar

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson) :

Herra forseti. Ég vil aðeins, áður en ég skýri frá seinni fsp. minni til hæstv. fjmrh., staðfesta þau orð hans, sem hann flutti hér þingheimi, að samkomulag væri á milli okkar um, að svör við ákveðnum þáttum þessarar fsp. mætti bíða.

Síðari hluti fsp. minnar er á þessa leið í 4 liðum :

1) Hve margar n. hefur ríkisstj. skipað á árunum 1971 og 1972?

2) Hver var kostnaðurinn við þær n., sem skipaðar voru 1971?

3) Hver var kostnaðurinn við þær n., sem skipaðar voru 1972, og hve margar eru þær?

4) Eru einhverjar af n. þessum ólaunaðar?