10.04.1973
Sameinað þing: 69. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3317 í B-deild Alþingistíðinda. (2792)

184. mál, rannsókn á íbúðum og sameignum í Breiðholti

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson) :

Herra forseti. Þetta var nefnilega einn útúrdúrinn enn hjá röklausum manni. Þetta var um viðskipti félmrn. og Reykjavíkurborgar, meðan á byggingu stæði á þessum íbúðum, en það hefur ekki komið ein einasta kvörtun frá Reykjavíkurborg varðandi íbúðirnar gagnvart félmrn. Þetta var um þau viðskipti, en ekki viðskipti þeirra, sem keyptu íbúðir í Breiðholti.