11.04.1973
Efri deild: 89. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3322 í B-deild Alþingistíðinda. (2820)

104. mál, fangelsi og vinnuhæli

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Frv. þetta um fangelsi og vinnuhæli hefur allshn. d. haft til meðferðar. Það kemur frá Nd., sem hefur gert á því nokkrar breytingar. Ég tel ekki ástæðu til að fjalla nánar um þetta frv., sem eigi að síður er mjög mikilsvert. Hlýtur það að vera ofarlega í huga dm. og þeim það nægilega kunnugt, enda hefur það verið rætt áður. N. leggur einróma til, að frv. verði samþ. eins og það liggur nú fyrir hv. deild.