13.04.1973
Neðri deild: 88. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3509 í B-deild Alþingistíðinda. (3046)

164. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Að sjálfsögðu væri að bera í bakkafullan lækinn að leiðrétta allan misskilning hv. formanns sjútvn. Nd., en ég var alls ekki viðstaddur neina ákvörðun um þetta mál á fundinum. Ég var kominn hér í umr. í þinginu, þegar tekin var lokaákvörðun um það, og hafði aldrei tækifæri til þess að taka til máls í n., þegar byrjað var að ræða það á stuttum fundi hér stutt frá þingdeild. Þó að ég gæti efnislega fallizt á niðurstöðu meiri hl. n. hef ég ekki skrifað undir þetta nál. og er ekki með í því.