14.04.1973
Sameinað þing: 72. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3524 í B-deild Alþingistíðinda. (3061)

210. mál, sjónvarpsskilyrði á fiskimiðum

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hv. n. fyrir að hafa tekið upp í nál. sitt og brtt. þá brtt., sem ég flutti við 179. mál. Það var till. frá nokkrum Sjálfstfl.-þm. um sjónvarp á sveitabæi. Ég taldi í sambandi við þá brtt., sem ég flutti við það mál, að það væri ekki síður nauðsynlegt, að allir sjómenn, sem væru við strendur landsins, nytu sjónvarpsþjónustunnar. Í sambandi við þessa þörfu till., sem hafði komið frá hv. 7. landsk. þm. fyrir sjómenn á afmörkuðu svæði, fagna ég því, að n., sem hafði með mál þetta að gera, skuli hafa haft í huga, að það er víðar róið en þar vestra.