14.04.1973
Sameinað þing: 72. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3525 í B-deild Alþingistíðinda. (3063)
41. mál, úrskurðarvald félagsmálaráðuneytisins um ályktanir sveitarstjórna
Frsm. (Björn Fr. Björnsson):
Herra forseti. Í þáltill. þeirri, sem hér er til umr., er farið fram á, að ríkisstj. gangist fyrir athugun á ákvæðum þeirra lagaákvæða, sem lúta að úrskurðarvaldi félmrn. og annarra stjórnvalda, þegar um ræðir ályktanir sveitarstjórna og ágreining þar um, og við þá endurskoðun verði haft mið af því, hvort ekki sé bæði eðlilegt og rétt að fela sérstökum dómstóli að fara með nánar ákveðin ágreiningsefni, sem upp kunna að koma á sviði sveitarstjórnarmálefna, síðan verði skýrsla um þessa athugun ásamt niðurstöðum lögð fyrir næsta Alþ. og enn fremur, ef sýnist svo og ástæða þykir til, að lagafrv. verði einnig lögð fram varðandi þetta málefni. Till. snertir töluvert mikilvægt mál, sem bæði nú og fyrr hefur verið nokkuð um rætt, þó að eigi hafi verið gengið til þess að flytja till. hér á hv. Alþ. um það, svo að ég muni eftir, en allshn. þykir till. vera þess efnis, að henni beri að gefa tilhlýðilegan gaum.
Umsagnir hafa borizt um till. frá tveimur aðilum, annars vegar frá Dómarafélagi Íslands og hins vegar frá Sambandi íslenzkra sveitarfélaga, og báðar þær umsagnir eru mjög jákvæðar. Það er því till. okkar í allshn., að þessi þáltill. verði samþ.