07.11.1972
Sameinað þing: 12. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (309)

263. mál, afkoma hraðfrystihúsa

v Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Síðari fsp. mín til hæstv. sjútvrh. á þskj. 32 er um afkomu hraðfrystihúsa. Ég gerði nokkra grein fyrir þeirri fsp. hér, þegar ég ræddi fyrri fsp., og tel ég ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um ástæðurnar fyrir því, að ég ber hana fram, en vænti svara frá hæstv. ráðh.