14.04.1973
Efri deild: 95. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3558 í B-deild Alþingistíðinda. (3132)

225. mál, jöfnun flutningskostnaðar á sementi

Frsm. (Ragnar Arnalds) :

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft til athugunar frv. um jöfnun flutningskostnaðar á sementi. Frv. felur það í sér, að verð á sementi verði það sama alls staðar á aðalhöfnum landsins. :Nú er það svo, að verð á innlendu sementi er það sama á öllu aðaltollhöfnum landsins, og er því breytingin, sem felst í frv., fyrst og fremst fólgin í því, að slíkt hið sama gildi um innflutt sement. N. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt.