14.04.1973
Neðri deild: 89. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3560 í B-deild Alþingistíðinda. (3153)

222. mál, atvinnuleysistryggingar

Frsm. (Ingvar Gíslason) :

Herra forseti. Þetta frv. er komið frá Ed. Það var samþ. þar óbreytt og ágreiningslaust. Heilbr.- og trn. þessarar hv. d. hefur athugað frv. og mælir með samþykkt þess, en einstakir nm. hafa áskilið sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., og fram hefur komið ein brtt. frá hv. þm. Bjarna Guðnasyni, sem einnig er nm. í heilbr: og trn., en n. sem slík leggur til, að frv. verði samþ.