07.11.1972
Sameinað þing: 12. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í B-deild Alþingistíðinda. (316)
38. mál, framvæmd samgönguþáttar Norðurlandsáætlunar
Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin og fagna því, að mál þetta er komið á þann rekspöl, sem kom fram í svari hæstv. ráðh. Ég vænti þess, um það verði ekki látið þar við sitja og aflað verði fjár til þessara framkvæmda í framkvæmda- og fjáröflunaráætlun ríkisstj.