16.04.1973
Neðri deild: 91. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3605 í B-deild Alþingistíðinda. (3231)
225. mál, jöfnun flutningskostnaðar á sementi
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Frv. þetta hefur þegar hlotið afgreiðslu í Ed. Það er um jöfnun á flutningskostnaði á sementi, en eins og kunnugt er, hefur Sementsverksmiðja ríkisins haft svo að segja alla sementssölu í sínum höndum nú um alllangan tíma, og hafa ekki aðrir verzlað með þá vöru. Sementsverksmiðja ríkisins hefur þegar komið upp hjá sér ákveðnu jöfnunarverði á sementi, þannig að sama verð er á því svo að segja í öllum höfnum á landinu. Nú er búizt við því, að nokkur innflutningur geti átt sér stað á sementi í kjölfar aðildar okkar að EFTA og þessi innflutningur fari eitthvað vaxandi, og af þeim ástæðum er nauðsynlegt, að þeir aðilar, sem kunnu að flytja inn sement, lúti sömu reglum varðandi verðjöfnunarfyrirkomulag á sementi og Sementsverksmiðja ríkisins. Af þeim ástæðum er þetta frv. flutt. Hér er um tiltölulega einfalt mál að ræða og ætti því ekki að þurfa að taka langan tíma að afgreiða það. Vil ég vænta þess, að hv. fjh.- og viðskn., sem eflaust tekur málið til athugunar, sjái sér fært að afgreiða það fljótlega, svo að það geti orðið að lögum á þessu þingi.
Herra forseti. Ég legg til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. fjh: og viðskn. til athugunar.