16.04.1973
Sameinað þing: 73. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3651 í B-deild Alþingistíðinda. (3254)

Skýrsla um utanríkismál

Forseti. (Eyst J) :

Ég vil aðeins út af því, sem hv. þm. sagði um tilhögun fundar, minna á það, að þetta mál er eitt mála á dagskrá Sþ. í dag og því einu hefur verið helgaður fundurinn í dag. Hlé hafa ekki verið hér aukalega utan eitt í stundarfjórðung. Ef hv. þm. telur sig ekki hafa haft aðstöðu til þess að segja það, sem hann þarf að segja, eða aðrir hv. þm., mun þessum umr. að sjálfsögðu verða haldið áfram á morgun.