07.11.1972
Sameinað þing: 12. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (329)

57. mál, Lánasjóður íslenskra námsmanna

Ellert B. Schram:

Herra forseti: Það er stutt aths. Ég vil vekja athygli á því, að það hefur komið skýrt og afdráttarlaust fram í þessum umr., að hæstv. menntmrh. vill ekki taka afstöðu til þeirrar grundvallarbreytingar, sem fram kemur í fjárlagafrv., og enn fremur hefur líka komið fram í svörum hans, að hagsmunum námsmanna hér heima er ekki gætt við þessa nefndarskipun, því að tilnefndur Þorsteinn Vilhjálmsson hefur verið fulltrúi íslenzkra námsmanna erlendis.