17.04.1973
Neðri deild: 94. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3704 í B-deild Alþingistíðinda. (3325)
235. mál, tollheimta og tolleftirlit
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Það er aðeins ein stutt athugasemd út af orðum hv. 1. þm. Reykn. Hún er sú, að obbinn af þeim mönnum, sem falið er að gegna þessu starfi í erlendri höfn, þar sem þetta starf er nú venjulegast innt af hendi, hafa ekki minnstu hugmynd um, hvað eru nauðsynlegar og eðlilegar birgðir af áfengi og tóbaki. Ég er sannfærður um það, að meðalskammtur, sem kæmi um borð í t.d. farþegaskip, sem flytti um 220 íslenzka farþega, væri af ungtemplar í þessari stöðu, sem tæki á móti þeim birgðum, sem þá kæmu, talinn mjög óeðlilegur, þótt hinir vönu teldu það eðlilegt.