17.04.1973
Neðri deild: 96. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3715 í B-deild Alþingistíðinda. (3343)
225. mál, jöfnun flutningskostnaðar á sementi
Sjútvrh. (Lúðvik Jósepsson):
Herra forseti. Ég get því miður ekki gefið neinar upplýsingar um þetta atriði, sem hér var spurt um. Engar ákvarðanir hafa að sjálfsögðu verið teknar um það, hvaða háttur verði hafður á um þessi efni, en ég tel sjálfsagt, að það verði leitazt við að koma við sem mestu jöfnunarverði sements á um allt land. Ég geri ráð fyrir því, að þetta verði aðallega í höndum þeirrar sjóðsstjórnar, sem gert er ráð fyrir í frv. En sem sagt, það hefur ekki verið tekin nein bindandi ákvörðun um þetta, en mér sýnist einsýnt, að það eigi að koma verðjöfnun sem víðast á.