17.04.1973
Neðri deild: 96. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3715 í B-deild Alþingistíðinda. (3344)

225. mál, jöfnun flutningskostnaðar á sementi

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég tel eðlilegt, að hæstv. ráðh. geti ekki svarað þessu ákveðnara en þetta að sinni. En ég skil hæstv. ráðh. svo, að hann vilji, að heimildarákvæðið verði notað, og eins og hann sagði, að það verði stefnt að því að ná sem jöfnustu verði á sementi um allt land.