17.04.1973
Sameinað þing: 74. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3728 í B-deild Alþingistíðinda. (3361)

227. mál, sjúkrarúm fyrir langlegusjúklinga

Axel Jónsson:

Herra forseti. Hv. þm. Oddur ólafsson flytur á þskj. 499 fsp. til hæstv. heilbrrh. Fsp. er í þremur liðum, á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„1. Hvað er talið, að vanti mörg sjúkrarúm fyrir langlegusjúklinga?

2. Hvaða hópar langlegusjúklinga eru verst settir í þessu efni?

3. Hverra úrbóta má vænta á næstu árum“?