18.04.1973
Efri deild: 99. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3805 í B-deild Alþingistíðinda. (3434)

240. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja nokkrar eignir ríkissjóðs

Frsm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Fjh: og viðskn. hefur athugað frv. þetta, sem fjallar um sölu þriggja fasteigna: Ásbúðartraðar 1 í Hafnarfirði, Smiðjustígs 17 í Kópavogi og Skeljaness 10 í Reykjavík. N. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt.