18.04.1973
Efri deild: 100. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3809 í B-deild Alþingistíðinda. (3440)

76. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Axel Jónsson:

Herra forseti. Ég fyrir mitt leyti tel þetta fullnægjandi. Þetta var ein af þeim skýringum, sem lögfræðingarnir sögðu mér, að væri líkleg lausn og kannske sú eðlilegasta, miðað við þá tímaþröng, sem við værum í, og miðað við yfirlýsingar ráðh., held ég, að það sé ástæðulaust að óttast, að það þurfi að koma til árekstra út af þessu.