18.04.1973
Sameinað þing: 77. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3834 í B-deild Alþingistíðinda. (3474)

Kosning tveggja endurskoðenda reikninga Útvegsbanka Íslands

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn) :

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Alþingi, 93. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag.

Gjört í Reykjavík, 18. apríl 1973.

Kristján Eldjárn.

________________

Ólafur Jóhannesson.

Forsetabréf um þinglausnir: `

Samkv. þessu bréfi, sem ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið. Ég óska þm. velfarnaðar, gleðilegs sumars og gleðilegrar hátíðar, sem nú fer í hönd. Þjóðinni óska ég alls hins sama og allra heilla og bið alþm. að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að risa úr sætum.

Þingheimur stóð upp, og forsrh. Ólafur Jóhannesson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi“. Tóku þm. undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.