14.11.1972
Sameinað þing: 15. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í B-deild Alþingistíðinda. (418)

64. mál, skipulag vöruflutninga

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ekki ætla ég heldur að efast um einlægni hv. 7. landsk. þm, í þessu máli. En ég spyr beinlínis, úr því að nú er komin að völdum vinstri stjórn í landinu, sem hefur fullan áhuga á þessu máli, hún hefur haft undir höndum samþykkt Alþ., sem mælir beinlínis fyrir um, hvað gera skuli: Hvers vegna framkvæmir hún þetta ekki og alls ekkert af því, sem henni er fyrirlagt að gera.