15.11.1972
Neðri deild: 14. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í B-deild Alþingistíðinda. (454)

77. mál, lántaka Fiskveiðasjóðs Íslands o.fl.

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. varð við þeim tilmælum hæstv. ráðh. fyrr í dag að greiða fyrir afgreiðslu þessa máls fyrir sitt leyti. Hún hefur tekið þetta frv. til athugunar og leggur til, að það verði samþ. óbreytt. Það hefur ekki unnizt tími til að prenta nál. Þess vegna verð ég að afhenda það hæstv. forseta skriflega.