21.11.1972
Sameinað þing: 18. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í B-deild Alþingistíðinda. (520)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (EystJ):
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 21. nóv. 1972. Bjarni Guðbjörnsson, 4. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1, varamaður Framsfl. í. Vestfjarðakjördæmi, Halldór Kristjánsson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Eggert G. Þorsteinsson,
forseti Ed:“
Halldór Kristjánsson hefur áður setið þingbekk á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans því verið skoðað og samþykkt, og býð ég hann velkominn til starfa.