21.11.1972
Sameinað þing: 18. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (522)

Umræður utan dagskrár

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Eins og fram kom hjá hv. 1. þm. Reykv., er hæstv. forsrh. nú ekki á landinu. Hann er staddur í Kaupmannahöfn á forsrh: fundi Norðurlanda. Kemur það því í minn hlut að taka við þeirri ósk, sem hv. þm. setti hér fram.

Ég hef ekki í höndum neinar upplýsingar til þess að hefja umræður um það mál, sem hv. þm. gerði að umtalsefni, enda ekki til þess ætlazt af honum og þá heldur ekki af mér. En ég skal, vegna þess að ég gegni um stundarsakir störfum fyrir forsrh., taka að mér að koma þessum óskum hv. þm.: framfæri.