21.11.1972
Sameinað þing: 18. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (523)

71. mál, kaupábyrgðarsjóður

Fyrirspyrjandi (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Á síðasta Alþ. flutti ég ásamt hv. 5. þm. Reykn. frv. til l. um kaupábyrgðarsjóð. Frv. þetta hlaut ekki fornfræga afgreiðslu Alþ. þá, m.a. af því, að því er sagt var í þn., að ríkisstj. mundi hafa hug á að tryggja vinnandi fólki þann rétt, sem í frv. okkar hv. 5. þm. Reykn. fólst. Áður en við nú tökum ákvörðun um endurflutning fyrrgreinds frv., taldi ég bæði rétt og skylt að fá svör frá hæstv. félmrh. við þeirri fsp., sem við höfum flutt á þskj. 71, hvað líði undirbúningi þessa máls.