04.12.1972
Neðri deild: 20. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 996 í B-deild Alþingistíðinda. (689)

75. mál, gjaldaviðauki

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þetta frv, er gamall kunningi hér á hv. Alþ. Lagt er til, að heimilað verði, að þau gjöld, sem tilgreind eru í frv., nánast tiltekið hluti stimpilgjalda og leyfisgjalda, verði innheimt með sömu viðaukum á árinu 1973 og gert hefur verið á þessu ári. Fjh.- viðskn. þessarar hv. d. hefur athugað frv. og leggur til að það verði samþ. óbreytt.