13.12.1972
Efri deild: 23. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1123 í B-deild Alþingistíðinda. (846)
113. mál, fjölbrautaskóli
Auður Auðuns:
Herra forseti. Ég skal ekki vera langorð. Ég vildi ekki láta hjá líða að lýsa ánægju minni yfir því, að þetta frv. skuli nú aftur vera komið fyrir þingið, og vona, að það fái nú greiðan gang og afgreiðslu á þingi. Það frv., sem hæstv, ráðh. gat um og vitnað er til í grg., svo að segja samhljóða þessu, lagt fram í fyrra, kom fram svo seint á þinginu, að það þótti þá ekki svigrúm til þess, að það fengi þar fullnaðarafgreiðslu.
Ég vil lýsa ánægju yfir því nafni, sem velst á skólann, fjölbrautaskóli. Nafnið virðist ná mjög vel til þess, sem er aðaleinkenni þessa skóla, sem hér er um að ræða.
Eins og hæstv. ráðh. áðan vék að, var frumkvæðið, upphafið að undirbúningi þess, að slíkur skóli risi, hjá fræðsluáði Reykjavíkurborgar. Það er ekki óeðlilegt, að slíkt frumkvæði kæmi frá langsamlega stærsta og öflugasta fræðsluhéraði landsins, Reykjavík, sem hefur bæði starfskrafta og betri fjárráð en hin minni, enda hefur Reykjavik átt frumkvæði að mörgum nýjungum og framförum í skólahaldi. Það þótti auðvitað nauðsynlegt að leita samstarfs við ríkið um rekstur slíks skóla, þar sem í skólanum blandast saman skólastig, sem um hafa gilt sérstakar reglur fyrir hvert stigið um sig.
Ég geri ekki ráð fyrir, að ég persónulega hafi neinar aths. að gera við frv., eins og það liggur fyrir. Það fer til n., þykist ég vita, sem ég á sæti í, og ég fæ þá tækifæri til að fjalla um það. Ég vildi þó ekki láta hjá líða að lýsa ánægju yfir, að frv. er fram komið, og láta í ljós þá von og ósk, að það hljóti nú greiðan gang í gegnum þingið.