24.10.1972
Sameinað þing: 6. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í B-deild Alþingistíðinda. (94)

10. mál, lánveitingar Húsnæðismálastofnunar ríkisins

Forseti (EystJ):

Ég vil benda hv. þm. á, að í þingsköpum er gert ráð fyrir, að menn geti fengið skrifleg svör ráðh. við fsp., ef þeir óska þess. Það gæti verið skynsamlegt að nota þá aðferð, þegar um nokkuð flókin viðfangsefni er að fást, t.a.m. margar tölur.