06.12.1973
Sameinað þing: 31. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)

98. mál, raforkumál

Flm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Á þskj. 116 hef ég ásamt 10 hv. þm. Sjálfstfl. leyft mér að flytja till. til þál. um raforkumál. Tillgr. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. í samráði við sveitarfélög og samtök þeirra að vinna að eftirfarandi stefnumörkun í raforkumálum:

1. Raforkuiðnaðurinn verði efldur, svo að tryggð verði næg og sem ódýrust og öruggust raforka til allra notenda með því að:

a. orkubúskapurinn verði rekinu með hag alþjóðar fyrir augum ;

b. stærstu verkefnin við orkuvinnsluna verði leyst með sameiginlegu átaki alþjóðar;

c. hagkvæmni og öryggis- og umhverfissjónarmið verði látin ráða við val á mannvirkjagerð til raforkuiðnaðar;

d. fólkið í byggðum landsins fái sem beinust áhrif á stjórn raforkuiðnaðarins;

e. unnið verði að verðjöfnun rafmagns um land allt með því m. a. að veita óafturkræft stofnframlag til framkvæmda og jafna þannig aðstöðu raforkufyrirtækjanna, þar sem aðstæður eru óhagkvæmastar;

f. tryggja eðlilega arðgjöf raforkufyrirtækja miðað við raunhæft endurmat eigna.

2. Stefnt verði að því, að orkuvinnslufyrirtæki séu sameign sveitarfélaga og ríkis eða eign sveitarfélaga, sameignarfélaga þeirra eða hlutafélaga.

3. Stefnt verði að samtengingu raforkuvera og raforkukerfa. Samtengingar komi til framkvæmda, þegar þær eru hagkvæmari en aðrir valkostir til orkuöflunar eða í öryggisskyni.

4. Orkuvinnslufyrirtæki verði sameinuð í landshlutafyrirtæki, sem eftir því sem hagkvæmt er talið, og að því unnið þannig:

a. Samtenging fyrirtækjanna grundvallastáfrjálsum samningum, framlögum aðila og mati á gildi markaðarins.

b. Skipting landsins í orkuvinnslusvæði markist af aðstæðum, og tryggt sé, að meiri hluti stjórnar orkuvinnslufyrirtækja sé búsettur á orkuvinnslusvæði viðkomandi fyrirtækis.

5. Komið verði á fót samstarfsnefndum landshlutafyrirtækjanna varðandi orkuvinnslu og samrekstur.

6. Unnið verði að því, að allar dreifiveitur verði eign sveitarfélaga, sameignarfélaga þeirra og/eða hlutafélaga.

7. Stefnt verði að sameiningu dreifiveitna í stærri einingar, þar sem hagkvæmt þykir. Stærð slíkra fyrirtækja fari eftir landfræðilegum og félagslegum mörkum, sem þurfa þó ekki að falla að mörkum orkuvinnslusvæða.“

Raforkumálin og framtíðarskipan þeirra hafa að undanförnu verið allmikið til umr. hjá ýmsum aðilum. Það er hvort tveggja, að Samband íslenskra rafveitna hefur tekið málið til sérstakrar meðferðar, m. a. fyrir tveimur árum með nefndarskipun, en sú n. átti að gera till. um ýmsa þætti raforkumálanna, svo sem um hugsanlega svæðaskiptingu, um uppbyggingu raforkuvinnslufyrirtækjanna, þar með talin eignaraðild ríkisins og sveitarfélaga, hver hún skuli vera, um dreifiveitur og rekstur þeirra og athuga hugsanlega möguleika á, að komið verði á víðtækari verðjöfnun á söluverði raforkunnar. Þá hafa samtök sveitarfélaga látið þessi mál til sín taka og rætt þau á fundum sínum. Mér er sérstaklega kunnugt um, að Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi samþykktu á aðalfundi sínum, sem haldinn var í nóv. 1971, að kjósa n., er athuga skyldi að gera till. um hagkvæmustu lausn á raforkumálum fyrir Vesturland í heild. N. sú, sem Samband ísl. rafveitna skipaði til þess að athuga og gera till. um skipan raforkumálanna, skilaði áliti í fyrrahaust og var það nál. tekið til umr. og afgreiðslu á sérstakri ráðstefnu sem Samband ísl. rafveitna og Samband ísl. sveitarfélaga efndu til sameiginlega um raforkumál dagana 12.–13. okt. 1972. Að lokinni þeirri ráðstefnu gáfu stjórnir samtakanna út grg. um það, hver verið hafði meginniðurstaða ráðstefnunnar. Sú grg., sem þar um ræðir, fylgir þáltill. sem fskj.

N. sú, sem kosin var af Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og ég áðan minntist á, skilaði einnig ítarlegu nál., sem tekið var til umr. á aðalfundi samtakanna á s. l. hausti. Fundur sá var haldinn á Akranesi, og var hæstv. raforkumrh. og þm. Vesturl. boðið að sitja þann fund og taka þátt í umr. um málið. Í því nál., sem raforkumálanefnd Vesturlands skilaði, komu fram ítarlegar upplýsingar um flesta þá möguleika, sem fyrir hendi eru á Vesturlandi til raforkuframleiðslu. Þar kemur fram, að Kljáfossvirkjun í Hvítá er tvímælalaust talinn hagkvæmasti valkosturinn til aukinnar raforkuvinnslu fyrir Vesturland. Í sambandi við fyrirhugaða virkjunarframkvæmd við Kljáfoss hefur nú þegar farið fram allítarleg rannsókn á virkjunaraðstöðu og kostnaðaráætlun gerð. Að sjálfsögðu er sú kostnaðaráætlun, þótt ekki sé nema tveggja ára gömul úrelt í dag eins og annað, sem háð er þeirri verðbólguþróun, sem átt hefur sér stað að undanförnu, og gildir að sjálfsögðu það sama um aðrar hliðstæðar framkvæmdir.

Sú rannsókn, sem ég hef minnst á, sýndi, að hér er um hagkvæma virkjun að ræða í orkuveri, sem er af stærðinni 13.5–15 megawött, en það mun vera talin hæfileg stærð orkuvers til jöfnunar og viðbótar hinum stærri virkjunum. Um framtíðarstefnu í raforkumálum Vesturlands var n. sammála um, að stefna bæri að því, að héraðsbúar sjálfir réðu sem mestu í sínum raforkumálum og að grundvöllurinn í því samstarfi væri, að Andakílsárvirkjunin færði út starfssvið sitt með aðild allra sveitarfélaga í kjördæminu og að öðru jöfnu yrði stefnt að því að nýta þar orkulindir, sem í héraðinu eru.

Ég hef talið rétt að geta þessara tveggja ályktana, annars vegar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og hins vegar Sambands íslenskra rafveitna. Mér er einnig kunnugt um, að í öðrum landshlutum, eru mál þessi mikið rædd, enda er hér um eitt stærsta hagsmunamál landsbyggðarinnar að ræða, og veltur á miklu, hver framtíðarstefnan verður varðandi alla þá þætti raforkumálanna.

Með þeirri till. til þál., sem hér er til umr., má segja, að borin sé fram ákveðin stefnumörkun raforkumálanna, bæði að því er snertir sjálfa raforkuvinnsluna og einnig dreifiveitur og aðra þætti rafvæðingarinnar. Það er öllum löngu ljóst, að í vatnsorkunni og jarðvarmanum búa einhverjar mestu auðlindir okkar lands. Með sífelldri tækjaþróun verða þessar auðlindir auðnýttari til hvers konar þjónustu fyrir íbúana og til allra framleiðslustarfa. Af þessu leiðir, ekki síst með tilliti til þeirra gífurlegu verðbreytinga, sem nú eiga sér stað í heiminum á olíu og annarri orku, að eftirspurn eftir raforkunni fer sívaxandi. Þjóðin eygir nú möguleika á nýjum og nýjum verkefnum til framleiðslu, sem miklar vonir eru bundnar við og skapa munu enn breiðari grundvöll og auka alla fjölbreytni í framleiðslugreinum þjóðarinnar. Það segir sig því sjálft, að öll stærstu verkefnin við sjálfa orkuvinnsluna verða ekki leyst nema með sameiginlegu átaki alþjóðar. Kemur m. a. til greina, að ríkið verði eignaraðili á ýmsan hátt. En engan veginn er nauðsynlegt að lögbinda fyrir fram, að hlutur ríkisins skuli vera 50% eða meira. Eðlilegast væri, að hinar ýmsu sveitarafveitur, sem koma til með að kaupa raforkuna, ættu þess kost að vera eignaraðilar og þar með þátttakendur í sjálfri uppbyggingunni á aðalorkuvinnslufyrirtækjunum í landinu.

Varðandi orkuvinnslufyrirtæki, sem byggð verða í hinum ýmsu landshlutum og eru af þeirri stærðargráðu, að orkuframleiðslan verði að miklu leyti hagnýtt á viðkomandi svæði, er eðlilegast, að fyrirtækið eða orkuverið sé að sem mestu leyti í eigu heimamanna og undir þeirra eigin stjórn. Í þeim efnum höfum við fyrir okkur góð fordæmi til fyrirmyndar. Þar eru t. d. Andakílsárvirkjunin, sem er sameign Akraneskaupstaðar og Mýra- og Borgarfjarðarsýslna, Skeiðfossvirkjun, sem er eign Siglufjarðarkaupstaðar, Laxárvirkjun, sem er að meiri hluta eign Akureyrarkaupstaðar, og síðast, en ekki síst orkuverin, sem Reykjavíkurborg hefur reist, bæði hér við Elliðaárnar og Sogið og einnig með þátttöku sinni í hinum stærri virkjunum ásamt með Landsvirkjun.

Til að fullnægja orkuþörf í hinum ýmsu landshlutum, ber að sjálfsögðu að meta þá valkosti, sem um er að ræða í hverju tilfelli, og að sjálfsögðu að velja þá leið, sem tryggir í senn sem hagkvæmast verð raforkunnar og veitir einnig sem mest öryggi í rekstrinum. Þegar um er að ræða orkufrekan iðnað eins og t. d. álframleiðsluna í Straumsvík, kemur að sjálfsögðu ekki annað til greina en stórvirkjanir í stærstu fallvötnum landsins. Öðru máli gegnir hins vegar um þjónustu og allan almennan og algengan iðnað til heimilisnota. Í þeim tilfellum ber að kanna rækilega alla þá möguleika, sem fyrir hendi eru heima í héraði, og hagnýta síðan að öðru jöfnu þann valkostinn, sem veitir mest öryggi.

Um uppbyggingu orkuframleiðslunnar í landinu má einnig vitna til þess, að skömmu áður en orkul. frá 1964 voru sett, hafði Alþ. sett lög um Landsvirkjun og Laxárvirkjun, tvö raforkufyrirtæki, sem voru í sameign ríkis og sveitarfélaga fyrir tiltekin svæði í landinu. Segja má, að Alþ. hafi þá markað þá stefnu, sem einnig kemur fram í þessari till., varðandi allar meiri háttar framkvæmdir, að skipta landinu í orkusvæði eftir hagkvæmum landfræðilegum mörkum og stjórnunarlegum, t. d. í samræmi við kjördæmaskipunina. Í öllum landshlutum eru nú fyrir hendi orkuver, sem eðlilegt væri, að mynduðu grunninn undir þessa skipan mála.

Segja má, að raforkumálin standi nú á tímamótum. Að því er lýtur að sjálfri raforkudreifingunni, er gert ráð fyrir því, að eftir rúmlega eitt ár verði lokið við að leggja allar dreifiveitur um landið, eða að öll þau býli í landinu, sem gert er ráð fyrir, að fái rafmagn frá samveitum, hafi þá verið tengd við samveitukerfið. Hitt er svo annað mál, að öll efling raforkuiðnaðarins og allt viðhald og aukning dreifilína verða að sjálfsögðu varanleg framtíðarverkefni.

Um vinnubrögð við að koma á þeirri skipan, sem hér er lagt til í sambandi við hinar nýju samveitur, er að sjálfsögðu eðlilegast, að það eigi sér stað með samningum á milli sveitarfélaganna og þau skipi samstarfsnefndir til undirbúnings og sjálf framkvæmdin eigi sér stað í áföngum, eftir því sem um semst og aðrar ástæður leyfa. Um skipun stjórna fyrir hin nýju fyrirtæki ætti að vera auðvelt að finna grundvöll, þar sem gert er ráð fyrir, að stjórn fyrirtækjanna sé að mestu leyti í höndum heimamanna.

Í Danmörku, þar sem þróun af þessu tagi hefur átt sér stað með samruna margra rafveitna í sjálfstætt fyrirtæki, oftast sjálfseignarfyrirtæki, eru stjórnir ýmist kjörnar af notendunum sjálfum eða tilnefndar af sveitarstjórnum eða þá sambland af þessu hvoru tveggja. Á Norðurlöndum hefur þróunin orðið sú, að ríkið annast hvergi dreifingu raforkunnar til notenda, nema litið eitt í Svíþjóð eða um 8%. Á Íslandi munu Rafmagnsveitur ríkisins hins vegar vera með 20% af dreifingunni, og má segja, að eftir atvikum og með tilliti til þess, á hvern hátt uppbyggingin hefur átt sér stað, hafi verið eðlilegt, að opinber stofnun hafi að nokkru leyti staðið fyrir þeim framkvæmdum. En nú, þegar þessu sameiginlega átaki er að verða lokið, er jafneðlilegt, að heimamenn yfirtaki samveiturnar, eftir því sem við á og svæðaskipan segir til um. Hvergi á Norðurlöndum er talið, að ríkið taki upp frekari afskipti af dreifingunni.

Eins og ég áður hef sagt, eru um þessar mundir þáttaskil í starfsemi Rafmagnsveitna ríkisins. Hinni eiginlegu rafvæðingu er að verða lokið, og það mun nú sýna sig, að hér á Íslandi ekki síður en á hinum Norðurlöndunum verður affarasælast, að raforkudreifingin verði í höndum notendanna sjálfra, því að sjálfs er höndin hollust og sjálfstýringar frá einni allsherjarmiðstöð í Reykjavík er ekki þörf.

Samkv. e-lið 1. tölul. er lagt til, að unnið verði að því að koma á verðjöfnun rafmagns um land allt og það eigi sér stað m. a. með því að veita óafturkræft stofnframlag til þeirra dreifiveitna, sem eiga við óhagkvæmastar aðstæður að búa. Verður að teljast eðlilegt, að reynt sé að koma á verðjöfnun á raforkunni, þannig að landsmenn allir sitji við sama borð í þeim efnum, hvað snertir raforku til sömu nota. Það er ekkert nýtt, að rætt sé um slíka verðjöfnun, enda má segja, að mismunur landsmanna í þessum efnum verði æ meira áberandi með hverju árinu sem líður. Það er því rétt og eðlilegt, að að því verði stefnt, að jafnhliða því, að landsveiturnar taki orkudreifinguna í sínar hendur, verði slíkri verðjöfnun komið á. Að sjálfsögðu getur verið um fleiri en eina leið að ræða í þeim efnum. Það getur komið til greina að fara þá leið, sem hér er lagt til, að veita óafturkræft stofnframlag í þessu skyni. Það getur einnig komið til greina, að verðjöfnun eigi sér stað á síðasta stiginu eða smásöluverðinu og þá með niðurgreiðslum til þeirra notenda, sem eiga við hvað óhagstæðast verðlag að búa. En hver sem niðurstaðan verður, er þess að vænta, að með ítarlegri könnun finnist leið til að leiðrétta það mikla misræmi, sem nú á sér stað í þessum efnum, því að um það munu flestir sammála, að við svo búið verði ekki öllu lengur unað.

Það var eitt, sem vakti sérstaklega athygli mína varðandi þessa hlið málsins, þegar ég las nál., sem skilað var til raforkumrh. í árslok 1969, þar sem starfsemi Rafmagnsveitna ríkisins var gagnrýnd á ýmsan hátt. Þar er því m. a. haldið fram og fullyrt, að fjárhagserfiðleikar og hin háa gjaldskrá Rafmagnsveitna ríkisins stafi fyrst og fremst af óhagkvæmum orkuöflunarkostum og dýrum flutningi raforkunnar, en alls ekki af óhagstæðum rekstri dreifiveitna, hvorki í sveitum né í þéttbýli. Þessar upplýsingar gefa vissulega til kynna, að sú leið, sem hér er lagt til. að farin verði til verðjöfnunar, sé hin rétta og með henni verði unnt að koma á viðunandi úrbótum í þessum efnum.

Einn er sá þáttur þessa máls, sem ég hef enn ekki komið sérstaklega að, en það er að gera sér grein fyrir, með hverjum hætti eignaraðild hinna ýmsu sveitarfélaga, sem engar dreifiveitur eiga nema þær dreifiveitur, sem eru í eign Rafmagnsveitna ríkisins, eigi að eiga sér stað. Ég tel, að hér þurfi ekki að vera um mikið vandamál að ræða. Hvort tveggja er, að stofnkostnaðurinn, að svo miklu leyti sem hann er ekki í skuld, er í ógreiddum lánum. Þá hefur hann verið borinn uppi af notendunum sjálfum með stofnframlagi og orkugjaldi auk þess framlags, sem komið hefur frá ríkissjóði árlega um langt árabil og má vissulega segja, að sé hliðstætt framlögum ríkisins á ýmsum öðrum sviðum, svo sem til samgöngubóta, bæði vegagerðar og hafnamála og fleiri skyldra málefna. Það er því ekki ástæða til að ætla annað en þessi þáttur málsins verði tiltölulega auðleystur.

Ég hef nú í stórum dráttum vikið að því helsta, sem máli skiptir og snertir einstaka liði þessarar till. um stefnumörkun í raforkumálum. Að sjálfsögðu er margt fleira, sem segja mætti um þetta stórmál, en ég mun nú ljúka máli mínu. Ég vil að lokum leggja áherslu á, að hér er um eitt hið mesta hagsmunamál að ræða, og það getur í sumum tilfellum haft úrslitaáhrif á framtíðarþróun þeirrar margumtöluðu byggðastefnu, sem nú er svo mikið talað um, að þurfi að efla á allan hátt, hvernig farið verður með þau málefni, sem till. þessi fjallar um.

Ég vil svo, herra forseti, leggja til, að umr. verið frestað og málinu vísað til fjvn.