10.12.1973
Efri deild: 33. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1153 í B-deild Alþingistíðinda. (1041)

145. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Félmrh. (Björn Jónsson) :

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir til 1. umr., er stjórnarfrv., en efni þess varðar tvær breytingar á l. nr. 8 1972, um tekjustofna sveitarfélaga, sem bæði einstök sveitarfélög og Samband ísl. sveitarfélaga sérstaklega hafa lagt mikla áherslu á, að nái fram að ganga. Fyrri breytingin, sem frv. felur í sér, felst í 1. gr., frv., en hún er sú, að sveitarstjórnum verði heimilað að innheimta sem fyrirframgreiðslu upp í útsvör allt að 60% þess útsvars, sem hlutaðeiganda bar að greiða næstliðið ár. Í gildandi lögum er þetta hámark fyrirframgreiðslu 50%, sem skal jafna á 5 gjalddaga, sem verða óbreyttir skv. þessu frv.

Rökin fyrir breytingu í þessa átt eru aðallega þau, að í fyrsta lagi jafni hún tekjur sveitarfélaga milli fyrri og síðari árshelmings og auðveldi þeim eðlilegan fjárhagslegan rekstur, og í annan stað færi hún gjöld útsvarsgreiðenda til, þannig að minni hætta sé á, að greiðslubyrðin væri óæskilega þung síðari hluta árs, þegar álagt útsvar á innheimtuárinu hefur hækkað frá fyrra ári, eins og hefur verið um langan aldur. Auk þess kemur það svo til, að hér er um að ræða að skapa aukið jafnvægi greiðslna til sveitarfélaganna og ríkisins af gjaldheimtu. Loks er hægt að benda á, að já breytingu, sem hér er lögð til, má skoða sem nokkurt skref í átt til staðgreiðslukerfis opinberra gjalda, sem launþegar m. a. leggja mikla áherslu á.

Síðari breytingin, sem ráðgerð er skv. frv., felst í 2. gr. þess, en hún er sú, að fjmrh. skuli heimilt að ákveða breytingu á fasteignamati til samræmis við verðlag 1. nóv. þessa árs, en með tekjustofnal. nr. 8 1972 var að því ráði horfið að auka hlut fasteignaskatta í heildartekjum sveitarfélaganna mjög verulega eða úr u. þ. b. 3% árið 1971 í nálega 18% árið 1972, en grundvöllur þessa skatts hefur staðið óbreyttur frá því ári. Er því ljóst, að ef hér verður ekki breyting á, fer þessi tekjustofn sveitarfélaganna stöðugt rýrnandi hlutfallslega, sem aftur hlýtur að skapa sveitarfélögunum aukinn fjárhagslegan vanda. Þykir því rétt að opna heimild fyrir fjmrh. til að hækka þennan gjaldstofn til samræmis við raunverulegar breytingar á verðlagi fasteigna fram til 1. nóv. s. l.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa hér um öllu fleiri orð, en legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. félmn. Ég vil vænta þess, að hv. þn. og hv. þd. hraði svo afgreiðslu frv., að það geti hlotið lokaafgreiðslu hér á hv. Alþingi fyrir jólaleyfi, þar sem frestun á gildistöku frv.-ákvæðanna mundi skapa sveitarstjórnum mikla örðugleika, m. a. við undirbúning fjárhagsáætlana og þær ákvarðanir, sem framkvæmd laganna svo breyttra gerir ráð fyrir.