13.12.1973
Efri deild: 34. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1163)
151. mál, skráning og mat fasteigna
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Ég þakka fyrir þær undirtektir, sem þetta frv. hefur fengið, og fagna því í sjálfu sér, að þetta er komið það langt, því að svo mikilli vinnu er búið að eyða í þetta mál og svo mörgum drögum að frv. er búið að kasta, að tími var nú til kominn, að eitthvað færi að sjást eftir.
Út af því, sem hv. 6. þm. Sunnl., Steinþór Gestsson, sagði hér áðan, um orð, sem er að finna í frv., þá get ég tekið undir það með honum, að þau eru ekki alls kostar að mínu skapi eins og t. d. „landmörk“. Við erum vanir að tala um landamerki, og ég hefði heldur kosið að hafa þann hátt á. En í sjálfu sér hef ég ekki farið yfir þetta mál þannig frá orði til orðs, heldur í sambandi við stefnuna, sem mörkuð er í því. Sumt af þessu eru tækniorð, sem farið er að nota í nútíma véltækni, sem mér er ekki full kunnugt um.
Atriðið um ábyrgð bæði sveitarstjórnar og byggingafulltrúa skil ég þannig, að raunverulega eigi sveitarstjórn að hafa eftirlit með því, að byggingafulltrúarnir standi í stöðu sinni gagnvart fasteignaskráningunni. Tel ég nauðsynlegt, að einhver aðili fylgist með því, og ber þeim þá að láta sveitarstjórnir fylgjast með störfum sínum. Ég skal að vísu játa, að það eru ekki allir byggingafulltrúar, sem heyra undir sveitarstjórnir, og að því leyti getur þetta orðið erfitt í framkvæmd.
Ég lít svo á í sambandi við staðsetningu matsmanna, því að það var á sínum tíma rætt allmikið á milli mín og þeirra, sem unnu að samningu málsins, að það sé hugsað, að þessir menn séu að því leyti hreyfanlegir, að starfssvæði þeirra sé ekki alveg endanlega ákveðið, þannig að það megi kveðja þá til starfa á víðtækara starfssvæði en upphaflega hafði verið hugsað, að þeir hefðu að sinna. Gæti það dálítið farið eftir verkefnum á hverjum stað.
Út af þeirri ábendingu, sem hv. þm. Axel Jónsson kom hér með áðan, vil ég segja, að ég tel, að mestu máli skipti, að n. gefi sér góðan tíma til að athuga þetta frv. vel, því að hér er um nýmæli að ræða, sem verulegu máli skiptir, að vei takist til um. Það skiptir mig miklu meira máli heldur en það, hvort einhverjar breytingar verða á frv. eða ekki. Ég hef sem sagt reynt að leggja á það áherslu að ná út úr þessu frv., að það næði þeim tilgangi að skrá fasteignir, svo að upplýsingar um fasteignir væru öruggar og að matið væri sem mest samræmt við það, sem er á hverjum tíma miðað við verðlag, og gera þetta ekki allt of flókið og margbrotið, eins og var galli á upphaflegum hugmyndum, sem fram voru settar. Þess vegna treysti ég hv. n. og hv. d. til þess að vinna að því, sem betur má fara í þessu frv., og það er fjarri mér að hafa nokkra viðkvæmni fyrir því, því að aðalatriðið er, eins og ég sagði, að löggjöfin verði sem best frá hendi Alþingis, þegar afgreiðsla þess máls fer hér fram, sem ég vona, að geti orðið á þessu þingi.