14.12.1973
Neðri deild: 42. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1465 í B-deild Alþingistíðinda. (1307)

138. mál, almannatryggingar

Flm. (Pétur Pétursson) :

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrrh. fyrir þessar upplýsingar. Það gleður mig, að þetta frv. er að koma. Áfangarnir eru auðvitað aðalatriðið í því, hvað þeir eru stórir, hvernig þeir eru hugsaðir. En ef við fáum að sjá þetta á borðum okkar að loknu jólaleyfi, tel ég það mjög mikils virði og vona þá, að það komist í gegn á þessu þingi.