14.12.1973
Efri deild: 37. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1465 í B-deild Alþingistíðinda. (1310)

153. mál, launaskattur

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Á þskj. 207 er frv. til l. um breyt. á l. nr. 14 frá 15. mars 1965, um launaskatt. Þetta frv. er góðkunningi í þessari hv. d., því að það hefur verið á ferðinni á hverju ári síðan 1970. Þetta frv., eins og það liggur nú fyrir á þskj., er nákvæmlega eins og gildandi lög eru, en ég held, að ég muni það rétt, að um þau hafi orðið samstaða hér í hv. d. Það var samstaða um þetta mál í hv. Nd., og hún greiddi götu þess, og ég verð einnig að biðja hv. fjh.- og viðskn. þessarar hv. d. að gera það.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta frv. fleiri orð, en legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði því vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.