15.12.1973
Efri deild: 39. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1475 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)

145. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Axel Jónsson:

Herra forseti. Við 1. umr. málsins í þessari hv. d. vakti ég athygli einmitt á, hvaða vandræðaástand væri ríkjandi í framkvæmd og álagningu aðstöðugjalda, og ég þakka hv. félmn. fyrir að taka þær ábendingar til greina.