17.12.1973
Neðri deild: 43. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1497 í B-deild Alþingistíðinda. (1355)

153. mál, launaskattur

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Það varð samkomulag um það í hv. Ed. að breyta þessu frv. þannig að taka inn í 2. gr. aðeins þann þáttinn, sem snýr að Byggingarsjóði ríkisins, og hafa hitt í ákvæði til bráðabirgða, enda hefur það alltaf verið svo, það hefur verið framlengt frá ári til árs, og stóðu allir hv. dm, að því. Að öðru leyti er frv. óbreytt, og ég treysti því, að sama samstaða verði um þetta hér.