18.12.1973
Neðri deild: 47. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1588 í B-deild Alþingistíðinda. (1476)

102. mál, veiðar með botnvörðu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelgi

Forseti (Gils Guðmundsson):

Eins og ég hef áður sagt, ætla ég að verða við þeim tilmælum að slíta ekki umr., en það er vissulega gert í trausti þess að, sú frestun verði ekki til þess að þetta mál nái ekki fram að ganga, þar sem ég vænti, að allir hv. alþm. geri sér ljóst, að á því er full nauðsyn.