21.12.1973
Sameinað þing: 42. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1687 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)

Þingfrestun

Forseti (Eysteinn Jónsson):

Áður en þessu þingi verður formlega frestað, vil ég leyfa mér að færa hv. alþm., hæstv. ráðh. og starfsfólki þingsins sérstakar þakkir fyrir gott samstarf við mig á þeim hluta þingtímans, sem liðinn er, og raunar á þessu ári, því að þetta verður síðasti þingfundur á þessu ári. Jafnframt vil ég óska þeim öllum gleðilegrar jólahátíðar og gleðilegs nýárs og láta í ljós þá von, að við hittumst hér heil öll á nýju ári í jan. n. k. Ég óska utanbæjarmönnum, þeim sem fara heim til sín í jólaleyfinu, góðrar ferðar, góðrar heimkomu og góðrar komu á ný til þingsins, þegar þar að kemur.