30.10.1973
Sameinað þing: 9. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í B-deild Alþingistíðinda. (159)
342. mál, umsjónar- og eftirlitsstörf í heimavistarskólum
Fyrirspyrjandi (Jónas Árnason) :
Herra forseti. 8. mars s. l. sendi fjármála- og áætlanadeild menntmrn. frá sér bréf, sem fól í sér svo hljóðandi tilkynningu:
„Samkomulag hefur orðið um að láta reglur skólaársins 1971–1972 fyrir umsjónar- og eftirlitsstörf í heimavistarskólum á skyldunámsstigi gilda einnig skólaárið 1972–1973.“
Þeim mönnum, sem þarna áttu hvað mestra hagsmuna að gæta, þ. e. a. s. kennurum og skólastjórum umræddra heimavistarskóla, kom þetta bréf nokkuð svo spánskt fyrir sjónir. Hálfu ári áður, þ. e. a. s. í sept. 1972, hafði fulltrúi þeirra setið tvo fundi, sem menntmrn. efndi til um þetta mál. Þessi fulltrúi hafði þar lagt til, að reglum vegna þessara starfa yrði breytt, svo að næmi, að ég hygg, hækkun um 22%. Síðan hafði hann aldrei verið til kvaddur að fjalla um málið. Bréf þetta var einnig einkennilegt að því leyti, að það var ekki sent fyrr en langt var liðið á skólatímann og fól þess vegna í sér reglur fyrir störf, sem viðkomandi skólastjórar og kennarar höfðu þá þegar innt af hendi að mestu. Þessum mönnum, viðkomandi skólastjórum og kennurum, finnst þetta dálítið einkennileg vinnubrögð, og það er fyrir tilmæli nokkurra manna í þeirra hópi, sem ég hef leyft mér að beina til hæstv. menntmrh. á þskj. 10 svo hljóðandi fsp.:
„Hverjir fjölluðu um það samkomulag, sem í bréfi menntmrn. til skólastjóra, dags. 8. mars 1973, segir, að orðið hafi um að láta reglur skólaársins 1971–1972 fyrir umsjónar- og eftirlitsstörf í heimavistarskólum á skyldunámsstigi gilda einnig fyrir skólaárið 1972–1973“?