28.01.1974
Neðri deild: 55. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1809 í B-deild Alþingistíðinda. (1673)
Umræður utan dagskrár
Jónas Árnason:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs, ekki til að skipta mér af því, hvernig tilteknir hv. þm. hafi skilið ummæli utanrrh. og annarra þeirra, sem komu fram í sjónvarpsþættinum s.l. föstudagskvöld, heldur vegna þess, að hér gefst tækifæri til að vekja athygli á mjög alvarlegu máli, og það er misnotkun sjónvarpsins í sambandi við þetta mál. Það eru þau vinnubrögð, sem sjónvarpið hefur tamið sér í sambandi við þetta mál og lýsa sér í því, að hlutur þeirra, sem berjast fyrir áframhaldandi hersetu á Íslandi, og nú síðast samtakanna Varins lands, er gerður þar mjög stór, en að sama skapi lítill hlutur þeirra, sem berjast fyrir því, að við losnum við herinn. Það er hægt að nefna mörg dæmi þessa, en segja má, að keyrt hafi um þverbak, að tekið hafi steininn úr s.l. föstudagskvöld. Þar koma fram þrír spyrjendur af hálfu sjónvarpsins, og allir þessir þrír spyrjendur haga þannig spurningum sínum og öllum málatilbúnaði, að það fer ekkert á milli mála, að þarna tala fulltrúar samtakanna Varins lands. Þessir þrír spyrjendur leituðust af fremsta megni við að gera þennan þátt að áróðursþætti fyrir samtökin Varið land og sérstaklega þó áróðursþætti fyrir formann Sjálfstæðisfl., sem þarna var staddur. Ég ætlast ekki til þess, að utanrrh. Íslendinga njóti sérstakra forréttinda í slíkum þáttum, en hann er þó utanrrh. Íslendinga, og í þætti, þar sem fjallað er um slíkt alvörumál eins og þetta, er hlutverk hans að sjálfsögðu stærst. En háttvísi þessa fólks var ekki meiri en það, að þegar þættinum lýkur, er orðið tekið af utanrrh., til þess að form. Sjálfstfl. geti í lokin flutt svolítinn einkaáróðurspistil yfir þjóðinni.