30.10.1973
Sameinað þing: 9. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í B-deild Alþingistíðinda. (170)

14. mál, dreifing sjónvarps

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson) :

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. menntmrh. fyrir greið svör. Ég vil aðeins bæta því við, að í ljósi þess, sem fram hefur komið, þverra þessar tekjulindir, og það er kannske helst, að það ætti að harma það, að ekki skyldi fyrr hafa verið tekið til athugunar, hvernig mætti bæta það upp. Vil ég láta í ljós þá von, að það finnist nú leiðir til að ljúka þessu átaki, sem ekki mun vera óskaplega stórt.