29.01.1974
Sameinað þing: 47. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1839 í B-deild Alþingistíðinda. (1702)
401. mál, litasjónvarp
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Það kann að stafa af tiltölulega lítilli þjálfun, sem ég hef haft í ræðumennsku síðasta hálft annað árið eða svo, hvað erfiðlega mér vill ganga að gera mig skiljanlegan, þegar hv. þm. Jónas Árnason, vinur minn, skilur ekki lengur, hvað ég er að fara. Ég held því fram, að það sé ekki hægt að fremja öllu meiri lögbrot í sambandi við útvarpsrekstur eða firðskiptarekstur á Íslandi heldur en með því að heimila Ameríkumönnum á sínum tíma útvarps- og sjónvarpsrekstur á Keflavíkurflugvelli. Ég get tekið undir það, að vera megi, að ósómi í litum sé verri en ósómi í svart/hvítu. Mér aftur á móti,— ég verð að viðurkenna það, — er næstum því óskiljanlegt, að ekki skuli hafa verið undinn að því bráður bugur þegar við myndun núv. ríkisstj. að stöðva þessar útsendingar. Ég er viss um, að þeir aðilar, sem það hefðu getað gert, eiga sæti í þessum salarkynnum núna. Ég veit, að það yrði erfiður róður fyrir íslenska sjónvarpið í samkeppni við amerískt litasjónvarp af Vellinum, ef Íslenska sjónvarpið héldi áfram að útvarpa í svart/hvítu. En ég tek undir það með hv. þm. Jónasi Árnasyni, að ég trúi því, að þeim muni ekki gefast tóm til að hefja litasjónvarp af Keflavíkurflugvelli, því að þeir verði, eins og segir í kvæði Hannesar Péturssonar, farnir þá.