30.10.1973
Sameinað þing: 9. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í B-deild Alþingistíðinda. (176)

20. mál, framhaldsnám hjúkrunarkvenna

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson) :

Herra forseti. Svar við fsp. hv. 2. þm. Norðurl. e. um hjúkrunarmenntun á Akureyri er það, að ég hef orðið var við áhuga á að efna þar til hjúkrunarmenntunar. Till. eða áætlanir um það hafa þó engar komið í mínar hendur.