04.02.1974
Neðri deild: 57. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1967 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)

60. mál, hjúkrunarlög

Frsm. (Jónas Árnason):

Herra forseti. Þetta frv. er komið hingað í þessa hv. d. úr Ed., þar sem það var samþykkt með nokkrum breytingum. Heilbr.- og trn. þessarar d. hefur fjallað um frv. og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess í þeirri mynd, sem það kom frá hv. Ed.