30.10.1973
Sameinað þing: 9. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í B-deild Alþingistíðinda. (182)

23. mál, bætt aðstaða nemenda landsbyggðarinnar

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég tók eftir því, að hæstv. ráðh. sagði áðan, að málaleitan rn. varðandi Tónabæ hefði engan árangur borið. Ber þá að skilja aths. hv. þm. Geirs Hallgrímssonar þannig, að þessari málaleitan hafi alveg verið synjað að fá Tónabæ sem mötuneyti fyrir skólafólk ?