12.02.1974
Sameinað þing: 53. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2128 í B-deild Alþingistíðinda. (1904)

411. mál, reglur við úthlutun viðbótarritlauna

Fyrirspyrjandi (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Þessi fsp. er algerlega samkynja þeim fsp., sem voru samkv. síðasta dagskrárlið, og ég læt þau formálsorð, sem ég hafði um þær fsp., nægja og ber fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. menntmrh.:

„Eftir hvaða reglum var farið við úthlutun viðbótarritlauna, og hvað áttu margir höfundar rétt á viðbótarritlaunum samkv. þeim: a) árið 1972, b) árin 1970 og 1971?“