13.02.1974
Efri deild: 56. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2164 í B-deild Alþingistíðinda. (1936)
210. mál, umferðarlög
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég skal ekki tala langt mál um þetta frv., eins og hæstv. forsrh. sagði, er það einfalt í sniðum. Ég tel samt óhjákvæmilegt að vekja athygli á tveim atriðum í frv. strax við 1. umr., sem hljóta að valda mönnum a.m.k. nokkurri umhugsun.
Það er annars vegar, eins og hæstv. forsrh. sagði, spurningin um það, hvað eðlilegt sé, að eiginábyrgðin sé há. Hér er lagt til, að hún tvöfaldist, verði 15 þús. kr. í stað 7500 kr. Ég vek athygli á því í þessu sambandi, að ef tjón verður, eins og reglurnar eru núna, þá eru þau útgjöld, sem bifreiðareigandi, sem hefur fullan bónus, verður vegna umferðarslyss í kringum 30 þús. kr. Það er alltaf álitamál, hversu hátt er hægt að fara með eiginábyrgðina að þessu leyti.
Hitt tel ég miklu vafasamara, sem gert er ráð fyrir í 2. gr., að leggja nýjan skatt á bifreiðaeigendur í landinu, 11/2% af iðgjöldum. Skattarnir á umferðina eru nú orðnir býsna margir og háar fjárfúlgur af þeim renna beint í ríkissjóð, og ég fæ ekki betur séð en það hefði verið eðlilegt, að eitthvað af því fé hefði verið tekið til þess að standa undir störfum Umferðarráðs. Ég viðurkenni, og það er öllum ljóst, að nauðsynlegt er að efla starfsemi Umferðarráðs. Það sýndi sig m.a., þegar hægri handar akstur var upp tekinn, að hægt er að ná geysimiklum árangri í sambandi við bætta umferðarmenningu með aukinni fræðslu og áróðri og margvíslegri kynningu. Það er áreiðanlega hægt að fyrirbyggja slys með þeim hætti. Hins vegar hef ég verið þeirrar skoðunar, að það sé nú kominn tími til að fækka sköttunum frekar en fjölga þeim, og er þess vegna a.m.k. í fyrstu lotu andvígur nýjum sköttum, hverju nafni sem þeir nefnast. Það er nú einu sinni svo, að borgararnir greiða til ríkisins með margvíslegum hætti. Þeir greiða tekjuskatt, þeir greiða tolla og söluskatt og hvað þetta allt saman heitir. Svo á að fara að hækka bensínið. Það er óvíst, hvað það verður mikið, en það verður áreiðanlega hækkað verulega á þessum vetri, og þar fram eftir götunum. Ég tel þetta því mjög vafasamt. Er ég þó engan veginn að draga úr þörf Umferðarráðs fyrir meira fé, en álít, að það hefði verið eðlilegra, að fjvn. hefði metið þarfir þess og ætlað fé til þess af þeim 30 milljörðum, sem fjárlagafrv. nemur.